
Þau voru að smíða sér hús úr trékössum sem pabbi þeirra hafði útvegað þeim í búðinni. Nú var aðeins eftir að negla nokkrar spýtur í þakið. Þau voru bæði með litlu hamrana sína sem þau höfðu fengið í jólagjöf. Með glansandi lökkuðu skafti og dökkrauðri rönd við hausinn. Hann hafði strax byrjað að kenna systu að negla. Nú var hún orðin jafn flink og hann. Hún hafði í byrjun barið illa á þumalputtann. Nöglin orðið kolsvört, dottið síðan af með tíð og tíma og var nú fyrst að byrja að vaxa aftur. Hann hughreysti hana með því að segja eftir afa að enginn lærði að negla án þess að missa að minnsta kosti eina nögl. Varð svolítið hissa þegar hún sagði snúðugt: Misstir þú kannski nögl? Hann sagðist hafa fengið tvær svartar og fundið mikið til í bæði skiptin. Hún lét það gott heita. Nú voru þau búin, settust inn og létu fara vel um sig. Þetta var eitthvað svo notalegt. Þau höfðu smíðað húsið sjálf og áttu það ein. Eigum við ekki að baka kökur? sagði systir hans og stökk á fætur. En fyrst þurfum við að ná í blóm til að skreyta þær. Við skulum velja hvort fyrir sig það sem okkur finnst fallegast. Það verður svo gaman að bera saman á eftir. Og þau fóru hvort sína leið út í holtið. Drengurinn var ekki vanur að tína blóm en nú fór hann að leita og skoða. Ætlaði að sýna systu að hann kynni á blóm. Sóleyjar og fiflar voru auðvitað ómissandi, svo mikið vissi hann. Það var ofsa flott að mylja fiflana í sundur og strá þeim svo yfir kökurnar. En eitthvað annað þurfti hann að finna, eitthvað nýtt og sjaldgæft. Flauelsblómið var svo sem ágætt en hann hafði svo oft séð systur sína með það. Hann leitaði og leitaði, fór lengra og lengra. Varð loks þreyttur, settist niður og hvíldi sig. Sólin kom framundan skýi og þegar hann klæddi sig úr peysunni sá hann glitta í eitthvað á jörðinni og laut niður. Lítill, nettur fifill með finlegum hárum á leggnum teygði sig til hans. Hvítur kollurinn með gulum og bleikum hringjum. Þetta er fallegasta blóm sem ég hef séð. Hvað ætli systa segi þegar hún sér það? hugsaði hann með sér um leið og hann hljóp af stað með blómið í hendinni.