Mikið er hún falleg í haustskrúðanum, höfuðborgin okkar. Garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar á sannarlega heiður skilinn fyrir störf sín undanfarna áratugi. Af smekkvísi og alúð hefur hann og hans fólk með grænum fingrum fært miðborgina, almenningsgarða og torg í litskrúðug, ilmandi klæði. Þetta eru þeir staðir þar sem borgarbúar spóka sig gjarnan á góðum dögum yfir sumarmánuðina. Það er hrein unun að setjast þar á bekk í sólskininu og geta notið litadýrðarinnar, teygað að sér ilm blómanna sem berst með golunni á meðan börnin og barnabörnin gæða sér á ís og skoða fuglana á tjörninni.
Já, margt gott hefur verið gert í seinni tíð af stjórnvöldum í höfuðborginni sem orðið hefur til þess að bæta mannlífið. Reykjavík er orðin falleg borg við sundin blá, sem íbúarnir geta verið stoltir af. Eða hvað? Er sagan ef til vill ekki nema hálf sögð? Því verður hver að svara fyrir sig en sá sem þessar línur ritar er ekki í vafa. Eftir er að minnast á skuggahliðina og það væri ómerkilegur vinur sem þegði yfir henni.
Í yfirlýsingu frá Borgarstjórn í kjölfar nýafstaðinnar menningarnætur segir: ,, – að í heild hafi menningarnótt í Reykjavík tekist afskaplega vel og verið skipuleggjendum, borgarbúum og gestum til mikils sóma.‘‘ Svo mörg voru þau orð. Það þarf ansi mikla kokhreysti, eða öllu heldur siðblindu, til þess að láta sér þessi orð um munn fara um þau skrílslæti sem áttu sér stað umrædda nótt, og ég er satt að segja alveg standandi bit á annars um margt góðri Borgarstjórn. Það er ákaflega bagaleg tilhneiging þeirra sem með valdið fara á hverjum tíma að vera í bullandi afneitun á það sem miður fer í stjórnsýslunni og breiða yfir mistök. Þetta verður oft til þess að viðhalda ófremdarástandi á ýmsum sviðum til stórtjóns og skammar öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Við vitum öll hvað gerðist. Svo yfirgengileg var villimennskan og viðurstyggðin að það var ekkert annað en kraftaverk að enginn skyldi bíða bana þessa menningarnótt í Reykjavík. Ölæðið, misþyrmingar á fólki í stórum stíl, skemmdarverkin og sóðaskapurinn er í svo himinhrópandi andstæðu við það sem til var stofnað að engu tali tekur.
Það skrítna er að þetta er ekkert nýtt. Þetta ástand hefur viðgengist áratugum saman alls staðar þar sem Íslendingar koma saman til veisluhalda að næturlagi. Það vekur bara meiri athygli í þetta sinn vegna hins afkáralega klaufaskapar skipuleggjendanna að kenna þetta við menningu. En fátt er svo með öllu illt… ef til vill verður þetta grátbroslega öfugmæli MENNINGARNÓTT til þess að opna augu okkar. Það er sannarlega kominn tími til að Íslendingar hafi manndóm í sér til að horfast í augu við þennan þjóðarósóma.
Fylliríið á mannskapnum hefur lengi verið mikið feimnismál hjá okkur Íslendingum. Við höfum vitað upp á okkur skömmina og fyllst sektarkennd en skort kjark til að horfa á ástandið algáðum augum. Sektarkennd og afneitun fara illa með heilbrigða skynsemi og gott dæmi um það er EITURLYFJAFÁRIÐ svokallaða.
Snemma á þessu ári rak ég augun í eftirfarandi fyrirsögn með stóru letri í dagblaði í borginni: GREINILEG FÍKNIEFNANEYSLA Á FJÓRUM KRÁM. Fréttin sýnir í hnotskurn það viðhorf sem búið er að hamra inn í fólk. Að hinn löglegi vímugjafi alkóhól sé tiltölulega saklaus miðað við hin skelfilegu eiturlyf sem fúlmenni ein í undirheimunum komi ofan í blásaklaust fólk. Þetta er svo yfirgengileg afskræming á raunveruleiknum að maður grætur og hlær á víxl. Því það vita náttúrlega allir sem nenna að hugsa heila hugsun til enda að alkóhól er eitthvert sterkasta og hættulegasta fíkniefni sem til er og veldur að minnsta kosti 99% af öllum þeim hörmungum sem fíkniefni valda í heiminum. Tölfræðilega séð tekur því varla að minnast á önnur fíkniefni og eiturlyf. Fjarri sé það mér að gera lítið úr neyslu annarra eiturlyfja en áfengis og skelfilegum afleiðingum af hennar völdum en aðaláhersla í fíkniefnavörnum á auðvitað að vera á áfengisvandamálinu.
Auðvitað hefði Borgarstjórn átt að vera búin að taka á þessum ósóma fyrir löngu í staðinn fyrir að standa í sandkassaleik við Ríkisvaldið um hver sé ábyrgur, hver eigi að standa straum af kostnaði við löggæslu og svo framvegis. Valdhafar í Reykjavík verða að horfast í augu við þá staðreynd að þeir eru ábyrgir fyrir því sem aflaga fer í borginni og til þess kjörnir að ráða bót á. Að maður tali nú ekki um slíkan smánarblett sem hér um ræðir. Hvergi nokkurs staðar í siðuðu samfélagi er annað eins látið viðgangast og styrjaldarástandið í miðborg Reykjavíkur um helgar, þar sem saklausu fólki er misþyrmt og það jafnvel barið til bana að öllum ásjáandi, og göturnar eins og vígvöllur á eftir, þaktar flugbeittum gerbrotum og skæðadrífu af drasli og óþverra.
Við erum náttúrlega öll samsek í glæpnum með sinnuleysi okkar og afneitun en borgaryfirvöldum ber samt skylda til að gera eitthvað í málinu og það strax. Þau gætu byrjað á því þegjandi og hljóðalaust að margfalda fjölda löggæslumanna á þessum tíma. Standa þrjótana og ofbeldismennina að verki og láta þá gjalda fyrir. Æskilegast væri auðvitað ef hægt væri að leiða þeim fyrir sjónir hvað þeir hafi raunverulega verið að aðhafast og dæma þá til samfélagsþjónustu í stað sekta eða fangelsisvistar. Þeir þyrftu að taka til hendinni við að þrífa götur, almenningsaðstöðu og salerni eftir menningarnætur, og þeim yrði gert að vinna við aðhlynningu á bæklunardeildum sjúkrastofnana þar sem er að finna örkumla fólk eftir barsmíðar. Samfélagsþjónusta í stað hefðbundinna refsinga hefur víða verið reynd í siðuðum samfélögum og gefið góða raun. Já, því miður er það nú komið á daginn að blessað R-lista fólkið, svo gott sem það er, er farið að fitla við sterkasta fíkniefnið á markaðnum, valdhrokann. Ég ætla bara að vona að það geri eitthvað í sínum málum áður en það er orðið um seinan.